Það er komið nýtt lykilorð en ekki vera feimin að biðja um það !
Nýjar myndir - 5.Febrúar '09




Foreldrar okkar heita Sigríður Eva og Einar Þór og við erum gullmolarnir þeirra :)
Við eigum heima með mömmu okkar í Tröllagili og eigum líka heima hjá pabba okkar í Hlíðarlundi. Einar Rafn er á leikskólanum Naustatjörn og deildin hans heitir Huldusteinn , hér geturðu séð heimasíðu Naustatjarnar
María Katrín er í 2.bekk í Giljaskóla
Við ætlum að fara að vera dugleg að setja hérna inn nýjustu fréttir af okkur svo endilega fylgist með og kvittið í gestabókina okkar því okkur finnst svo gaman að fá kveðjur !!!
ELSKU BARN.
Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.
Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.
Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .
Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .
Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.



Mamma er Konan
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.
Pabbi er Maðurinn
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.
